Um mig
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sköpun, samfélagsmiðlum og öllu sem tengist stafræna heiminum. Frá því ég man eftir mér hef ég haft gaman af því að læra á nýja tækni og oftast bara með því að prófa mig áfram. Í dag starfa ég í fullu starfi við samfélagsmiðla og þjónustu samhliða BA-námi í skapandi greinum. Ég hef öðlast mikla reynslu á bak við tjöldin, hvort sem það er við að skapa efni, mynda, klippa, hanna eða þróa hugmyndir. Ég er nánast alltaf með símann eða myndavélina á lofti, tilbúin að fanga augnablik, hugmynd eða efni.
Flokkur
Portfolio
Senda skilaboð
Spjallið opnast beint við Kata á MyFolio — engin netföng.
Einkunn
★ 5.0 af 5 — 2 umsagnir
Mjög gott samstarf! Mjög góð samskipti og skilaði verkefninu fallega af sér. Mæli með samstarfi við Kötu. Takk kærlega fyrir okkur.
Frábært samstarf frá upphafi til enda! Kata skilaði virkilega fallegu og vönduðu efni í þeim gæðum sem við óskuðum eftir. Hún stóð við öll tímamörk og það var mjög auðvelt og þægilegt að eiga samskipti við hana. Hún tók vel í ábendingar og var fljót að bregðast við. Við erum mjög ánægð með útkomuna og mælum hiklaust með henni.
