Um MyFolio
Vettvangur fyrir skapandi fólk á Íslandi
MyFolio er stafrænn sýningar- og tengslavettvangur sem var stofnaður til að veita skapandi einstaklingum á Íslandi einfalda, glæsilega og faglega leið til að koma verkefnum sínum á framfæri.
Hvort sem þú ert ljósmyndari, hönnuður, kvikmyndagerðarmaður, förðunarfræðingur, efnisgerðarmaður eða starfar í öðrum skapandi geira — þá er Myfolio þinn staður til að sýna hvað í þér býr.
Af hverju MyFolio?
Hugmyndin að MyFolio kviknaði árið 2022 þegar Emelía Sól var nýútskrifuð úr ljósmyndun í Tækniskólanum og fann glöggt fyrir skorti á sýnileika fyrir nýja skapara. Til að láta hugmyndina verða að veruleika fékk hún Ísak Eldjárn og Dag Snæ með sér í lið. Við vitum að það eru til aðrir vettvangar, en við vildum gera hlutina öðruvísi og sanngjarnari.
0% Þóknun – Þitt er þitt
Við tökum enga prósentu af verkefnunum þínum. Allar tekjur sem þú aflar í gegnum vettvanginn fara 100% beint til þín — nákvæmlega eins og það á að vera.
Gagnsætt og áreiðanlegt
Ekkert falið aukagjald. Aðeins 2.990 kr. á mánuði til að vera hluti af samfélaginu.
Fullt sjálfstæði
Þú stýrir þínu portfolio, þínum samskiptum og þínum verðmiðum án milliliða.
Hvað gerum við?
Fyrir skapara
Við bjóðum upp á einfalda lausn þar sem skaparar geta sett upp sitt eigið portfolio á nokkrum mínútum, safnað verkefnum sínum á einn stað og náð til nýrra viðskiptavina.
Fyrir fyrirtæki & verktaka
Við auðveldum fyrirtækjum, framleiðsluhúsum og einstaklingum að finna rétta hæfileikafólkið fyrir næsta verkefni á einum og sama staðnum.
Okkar sýn
Markmið okkar er að efla skapandi samfélag á Íslandi með því að gera tengslamyndun auðveldari og sýnileika aðgengilegri. Við trúum því að öll frábær verkefni byrji á góðu samstarfi — og Myfolio er brúin þar á milli.
Myfolio starfar sem sjálfstæður sýningarvettvangur og tengiliður milli skapara og verkkaupa.
Ertu skapandi?
Komdu þér á framfæri, byggðu upp þitt portfolio og láttu fólk finna þig.
Stofna frítt portfolio →