Myfolio

Notendaskilmálar

Skilmálar þessir gilda um notkun á vefsvæðinu og þjónustunni www.myfolio.is.

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um notkun á vefsvæðinu og þjónustunni www.myfolio.is (hér eftir „Myfolio“). Eigendur og forsvarsmenn Myfolio áskilja sér rétt til að uppfæra og breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Myfolio annars vegar og notenda (skapara, gesta og auglýsenda) hins vegar. Með því að stofna aðgang, hlaða inn efni eða kaupa þjónustu á Myfolio teljast skilmálar þessir samþykktir. Notendur skulu vera orðnir 16 ára til að stofna aðgang.

2. Þjónusta Myfolio og hlutverk sem milliliður

Myfolio er stafrænn vettvangur sem gerir skapandi einstaklingum kleift að kynna verkefni sín og tengjast fyrirtækjum og öðrum notendum. Myfolio getur jafnframt boðið fyrirtækjum og sköpurum að kaupa sýnileika, auglýsingapláss eða aðra kynningarþjónustu á vettvanginum.

Myfolio starfar eingöngu sem vettvangur þar sem skaparar geta kynnt verkefni sín og fyrirtæki geta fundið samstarfsaðila. Myfolio tekur ekki þátt í samningagerð, greiðslum eða framkvæmd verkefna milli notenda og ber enga ábyrgð á slíkum samskiptum, samningum eða framkvæmd þeirra.

3. Hugverkaréttur og eignarréttur á efni

  • Eignarréttur skapara: Skaparar halda öllum höfundarrétti og eignarrétti að því efni (myndum, texta, myndböndum) sem þeir hlaða inn á Myfolio.
  • Birtingarleyfi: Með því að hlaða efni inn á Myfolio veitir notandinn Myfolio óendurgjaldslaust og ótímabundið leyfi til að birta efnið á vefsvæðinu og í kynningarefni tengdu Myfolio í þeim tilgangi að kynna skaparann og vettvanginn.
  • Ábyrgð notanda: Notandi ábyrgist að hann eigi allan rétt á því efni sem hann birtir og að það brjóti ekki gegn réttindum þriðja aðila (þ.m.t. höfundarrétti, vörumerkjarétti eða persónuvernd).
  • Höfundarréttarbrot: Komi fram rökstudd krafa eða grunur um að efni brjóti gegn höfundarrétti eða öðrum réttindum þriðja aðila, áskilur Myfolio sér rétt til að fjarlægja efnið án fyrirvara meðan málið er skoðað.

4. Bannað efni, réttur til að hafna og uppsögn aðgangs

Óheimilt er að nota Myfolio til að birta efni sem er ólöglegt, ærumeiðandi, óvelkomið eða brotlegt við réttindi annarra. Einnig er óheimilt að falsa nafn, netfang eða aðrar persónuupplýsingar.

Myfolio áskilur sér rétt til að hafna stofnun aðgangs, fjarlægja efni eða loka aðgangi notenda varanlega án fyrirvara ef notandi brýtur gegn skilmálum þessum eða ef notkun telst skaðleg fyrir vettvanginn eða orðspor hans.

Notandi getur hvenær sem er óskað eftir lokun aðgangs síns með því að hafa samband við Myfolio eða nýta eyðingarmöguleika í stillingum.

5. Kaup á auglýsingum og þjónustu

Kaup á auglýsingaborðum, aukinni þjónustu eða sýnileika eru bindandi þegar greiðsla hefur farið fram eða reikningur verið gefinn út. Verð og þjónustuframboð eru birt með fyrirvara um innsláttar- og prentvillur. Myfolio áskilur sér rétt til að hafna eða fjarlægja auglýsingar sem samræmast ekki stefnu eða gildum vettvangsins.

6. Takmörkun á ábyrgð

  • Engin ábyrgð á efni: Myfolio ábyrgist ekki að upplýsingar, verkefni eða önnur gögn sem notendur birta séu nákvæm, rétt eða uppfærð.
  • Tekju- og viðskiptaábyrgð: Myfolio ábyrgist ekki að notkun vettvangsins leiði til atvinnu, verkefna, tekna eða annarra viðskiptatækifæra fyrir notendur.
  • Rekstrartruflanir: Myfolio ber ekki ábyrgð á tímabundnum truflunum á rekstri vefsvæðisins, gagnatapi eða beinu/óbeinu tjóni sem notandi kann að verða fyrir vegna notkunar á vefnum.
  • Lokun þjónustu: Myfolio áskilur sér rétt til að breyta þjónustunni eða leggja hana niður tímabundið eða varanlega án bótaskyldu.
  • Force Majeure: Myfolio ber ekki ábyrgð á vanefndum eða seinkunum sem rekja má til atvika utan eðlilegrar stjórnunar félagsins, svo sem náttúruhamfara, netárása, rafmagnsleysis eða annarra sambærilegra óviðráðanlegra atvika.

7. Persónuvernd

Meðferð og vinnsla persónuupplýsinga fer samkvæmt sérstakri persónuverndarstefnu Myfolio sem birt er á vefnum.

8. Breytingar og ágreiningur

Myfolio áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Rísi ágreiningur á grundvelli þessara skilmála skal reyna að leysa hann með samkomulagi. Að öðrum kosti skal reka dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

9. Hlutverk MyFolio, ábyrgð notenda og staðfesting upplýsinga

9.1 Hlutverk MyFolio

MyFolio er stafrænn vettvangur sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að birta prófíla, portfolio, verkefni og aðrar upplýsingar í þeim tilgangi að tengja saman þá sem leita að þjónustu og þá sem bjóða hana.

MyFolio er ekki aðili að samningum eða viðskiptum sem kunna að verða til milli notenda vettvangsins. Samskipti, samningar, verðlagning, greiðslur, afhending, framkvæmd verkefna og úrlausn ágreinings fara fram beint milli viðkomandi aðila og á þeirra eigin ábyrgð.

MyFolio tekur ekki við eða miðlar greiðslum vegna verkefna sem notendur semja um sín á milli, nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Notendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér og sannreyna eftir því sem við á upplýsingar um gagnaðila áður en gengið er til viðskipta. MyFolio ábyrgist ekki gæði, verð, framkvæmd, afhendingu eða niðurstöðu þjónustu sem samið er um í kjölfar tengingar sem verður til í gegnum vettvanginn.

Birting verkefnis, prófíls eða annarra upplýsinga á MyFolio felur ekki í sér meðmæli, ábyrgð eða staðfestingu MyFolio á viðkomandi notanda eða þjónustu nema annað sé sérstaklega tekið fram.

9.2 Ábyrgð notenda á upplýsingum og starfsréttindum

Notendur sem kynna eða bjóða þjónustu sína á MyFolio bera sjálfir ábyrgð á því að upplýsingar sem þeir birta séu réttar, uppfærðar og ekki villandi. Þetta á meðal annars við um starfsheiti, menntun, reynslu, hæfni, starfsréttindi, leyfi, portfolio og aðrar upplýsingar á prófíl.

Notandi ber sjálfur ábyrgð á að hafa þau leyfi, starfsréttindi, menntun, löggildingu eða önnur skilyrði sem lög og reglur kunna að krefjast vegna þeirrar þjónustu sem hann býður.

Notanda er óheimilt að nota lögverndað starfsheiti eða gefa með öðrum hætti til kynna að hann hafi menntun, leyfi, löggildingu eða starfsréttindi sem hann hefur ekki.

Flokkar MyFolio eru fyrst og fremst þjónustuflokkar sem ætlað er að auðvelda leit og flokkun á vettvangnum. Skráning undir flokki á borð við „Ljósmyndun“, „Grafísk hönnun“ eða „Beauty & naglaþjónusta“ felur því ekki ein og sér í sér staðfestingu MyFolio á menntun, hæfni, starfsréttindum eða leyfum viðkomandi notanda.

MyFolio áskilur sér rétt til að óska eftir gögnum, leiðrétta eða fjarlægja upplýsingar, breyta flokkun prófíls eða takmarka eða loka aðgangi ef ástæða er til að ætla að upplýsingar séu rangar, villandi, ólögmætar eða brjóti gegn skilmálum MyFolio.

9.3 Verification badge / staðfesting

MyFolio getur boðið notendum að senda inn gögn um menntun og/eða starfsréttindi og veitt prófíl þeirra sérstakt Verification badge eftir yfirferð þeirra gagna.

Verification badge merkir eingöngu að MyFolio hafi, á þeim tíma sem staðfesting fór fram, fengið og yfirfarið gögn sem að mati MyFolio styðja upplýsingar notandans um tiltekna menntun og/eða starfsréttindi.

Verification badge felur ekki í sér að MyFolio ábyrgist eða vottaði almenna hæfni, reynslu, fagmennsku, gæði vinnu eða þjónustu viðkomandi notanda. Merkingin felur heldur ekki í sér meðmæli MyFolio með viðkomandi.

Notandinn ber áfram sjálfur ábyrgð á að upplýsingar hans séu réttar og að hann hafi á hverjum tíma þau starfsréttindi, leyfi eða aðra heimild sem lög og reglur kunna að krefjast vegna starfsemi hans.

MyFolio kann að byggja staðfestingu á gögnum sem notandi leggur sjálfur fram og ábyrgist ekki að slík gögn séu laus við fölsun, villur eða aðrar rangfærslur sem ekki er með sanngjörnum hætti unnt að greina við venjubundna yfirferð.

MyFolio áskilur sér rétt til að hafna beiðni um staðfestingu, óska eftir frekari gögnum eða fjarlægja Verification badge hvenær sem er, meðal annars ef nýjar upplýsingar koma fram, gögn reynast röng eða úrelt eða ástæða er til að efast um réttmæti staðfestingar.

Notendum sem hyggjast kaupa þjónustu er eftir sem áður ráðlagt að sannreyna sjálfir þau réttindi, leyfi og aðrar upplýsingar sem skipta máli fyrir viðkomandi verkefni áður en gengið er til samninga.